Útgáfudagurinn gekk vel

[vc_row][vc_column width="1/2"][vc_column_text] Það var mikið um að vera hjá okkur í gær, á útgáfudegi Segulljóða. Í hádeginu vorum við í Norðlingaskóla þar sem Katrín Jakobsdóttir menntamálaráðherra fylgdist með iPad notkun í skólastarfinu og vígði síðan Segulljóðaforritið á eftirminnilegan hátt með því að semja fyrsta ljóðið ásamt nemendum skólans. Afraksturinn varð ljóðið Blóðlækur sem má sjá [...]

By |2017-01-04T01:08:01+00:00November 17th, 2012|Fréttir|0 Comments

Segulljóð fá frábærar viðtökur

Segulljóðin hafa fengið vægast sagt frábærar viðtökur þessa fyrstu viku. Strax á öðrum degi fór forritið í fysta sæti á sölulista App-búðarinnar á Íslandi og hefur haldist þar. Við erum búin að vera mikið á ferðinni að kynna forritið í fjölmiðlum og fórum einnig í skólaheimsókn í Grunnskóla Borgarness þar sem nemendur í 5. bekk [...]

By |2012-11-22T12:00:43+00:00November 22nd, 2012|Fréttir|0 Comments

Segulljóð komin fyrir iPhone og iPod Touch

Nú eru Segulljóð einnig komin út fyrir iPhone og iPod Touch. Í tilefni af því er forritið nú á sérstöku tilboðsverði $2.99 (+ vsk). https://itunes.apple.com/is/app/segulljo/id548949012 Þeir sem eiga nú þegar Segulljóð  fyrir iPad geta sett forritið upp á iPhone/iPod að kostnaðarlausu ef þeir nota sama Apple-aðgang á bæði tækin. Af þessu tilefni verðum við með kynningu [...]

By |2017-01-04T01:08:01+00:00December 18th, 2012|Fréttir|0 Comments

UT messa í Hörpu

Ís-leikir, útgefendur Segulljóða, verða með sprotabás á UT messunni í Hörpu föstudaginn 8. og laugardaginn 9. febrúar. Sérstök áhersla verður lögð á að kynna Segulljóð. Vonumst til að sjá sem flesta. Það verða frí bílastæði í bílakjallara Hörpu og margt skemmtilegt um að vera.

By |2017-01-04T01:08:01+00:00January 17th, 2013|Fréttir|0 Comments

Segulljóðakeppni

  Í tilefni af UT-messunni í Hörpu 8.-9. febrúar 2013, efna Ís-leikir ehf. í samvinnu við Hotel Rangá, Veitingahús Við Tjörnina og Forlagið Útgáfa, til segulljóðaleiks þar sem keppt verður um bestu segulljóðin. Til að taka þátt í keppninni þarftu að semja segulljóð með smáforritinu Segulljóð sem keyrir á iPad og iPhone og senda myndina af ljóðinu á netfangið: [...]

By |2017-01-04T01:08:01+00:00February 1st, 2013|Category One, Fréttir|0 Comments

Segulljóð komust í úrslit sem besta íslenska appið á Appmessu Microsoft

Segulljóð komust í úrslit sem besta íslenska appið á Appmessu Microsoft. Úrslitin verða tilkynnt í Rímu (salur í Hörpu) á laugardaginn Þessi 5 Öpp eru komin í úrslit á APPmessu Microsoft - 112 Iceland - Stræto bs. - Be Iceland - AirServer - Segulljóð

By |2013-08-30T15:41:58+00:00February 7th, 2013|Category One, Fréttir|Comments Off on Segulljóð komust í úrslit sem besta íslenska appið á Appmessu Microsoft

Vinningsljóðin

Dómnefndin er búin að leggjast yfir ljóðin og velja þau fjögur bestu. Í dómnefndinni eru Guðný Þorsteinsdóttir annar af höfundum Segulljóða, Emil Hjörvar Petersen rithöfundur og ljóðskáld og Ólafur Páll Johnsson markaðsfræðingur. Niðurstaðan úr vinsældarkeppninni er ljós þar sem við athöguðum "læk" stöðuna á miðnætti. Fyrstu verðlaun, gistingu fyrir tvo á í deluxe herbergi á [...]

By |2017-01-04T01:08:01+00:00February 12th, 2013|Fréttir|Comments Off on Vinningsljóðin

Vinnustofa á Skólaþingi

Verðum með vinnustofu á Skólaþingi í Norðlingaskóla á morgun. Norðlingaskóli 20. febrúar - Kl. 13:30 Vertu velkomin á skólaþing epli.is sem að þessu sinni verður haldið í Norðlingaskóla í Reykjavík. Mikið hefur verið lagt í veglega dagskrá þar sem lykilfyrirlesari verður Abdul Chohan frá ESSA Academy. Vinnustofur þar sem kennarar sýna hvernig er hægt að nýta [...]

By |2013-08-30T15:41:51+00:00February 19th, 2013|Category One, Fréttir|Comments Off on Vinnustofa á Skólaþingi

Styrkur frá atvinnumálum kvenna

[vc_row][vc_column width="1/1"][vc_column_text] Ís-leikir fengu í dag afhentan styrk frá atvinnumálum kvenna. Styrkurinn er til vöruþróunar á alþjóðlegri útgáfu á Segulljóðum fyrir börn og fullorðna. Nánari upplýsingar hér: http://www.atvinnumalkvenna.is/frettir/nr/1806/styrkjum-til-atvinnumala-kvenna-uthlutad/ [/vc_column_text][imageeffect image="3802" type="shadowreflection" css_animation="bottom-to-top" target="_self"][/vc_column][/vc_row]

By |2017-01-04T01:08:01+00:00April 3rd, 2013|Category One, Fréttir|Comments Off on Styrkur frá atvinnumálum kvenna

Ís-leikir heita nú Gebo Kano

Eftir áralangar vangaveltur létum við loks verða að því að breyta um nafn. Ástæðurnar fyrir því eru nokkrar. Stærsti hluti markaðsins okkar er erlendis frá og því ekki gott að vera með séríslenskt nafn sem auk þess er með séríslenskum staf í. Reynslan hefur líka sýnt okkur að bandstrikið í nafninu hefur ekki gert neitt annað [...]

By |2017-01-04T01:08:01+00:00August 28th, 2013|Category One, Fréttir|0 Comments
Go to Top