Nú eru Segulljóð einnig komin út fyrir iPhone og iPod Touch. Í tilefni af því er forritið nú á sérstöku tilboðsverði $2.99 (+ vsk).
https://itunes.apple.com/is/app/segulljo/id548949012

Þeir sem eiga nú þegar Segulljóð  fyrir iPad geta sett forritið upp á iPhone/iPod að kostnaðarlausu ef þeir nota sama Apple-aðgang á bæði tækin.

Af þessu tilefni verðum við með kynningu á Segulljóðum í verslun Epli.is í Smáralind í kvöld þriðjudaginn 18. desember. Það er um að gera að ná sér í Segulljóð fyrir jólin og senda frumlegar jólakveðjur til vina og vandamanna.