Segulljóðin hafa fengið vægast sagt frábærar viðtökur þessa fyrstu viku. Strax á öðrum degi fór forritið í fysta sæti á sölulista App-búðarinnar á Íslandi og hefur haldist þar. Við erum búin að vera mikið á ferðinni að kynna forritið í fjölmiðlum og fórum einnig í skólaheimsókn í Grunnskóla Borgarness þar sem nemendur í 5. bekk fengu að nota Segulljóð til að semja ljóð. Þetta voru mjög áhugasamir krakkar og örugglega nokkur framtíðarskáld þarna á ferðinni.

Hér fyrir er tengill á frétt Ríkissjónvarpsins um Segulljóðaforritið: http://www.ruv.is/frett/ljod-samin-a-ipad