Segulljóð samin

Föstudaginn 16. nóvember, á degi íslenskrar tungu, kemur Segulljóðaappið fyrir iPad út í App-búðinni út um allan heim. Katrín Jakobsdóttir menntamálaráðherra ætlar að opna forritið og vefinn sem því tengist með formlegum hætti í hádeginu með því að semja og senda inn ljóð.

Um kvöldið munum við svo hafa lítið útgáfuhóf til að fagna þessum tímamótum.