m1Eftir margra mánaða svita og strit, en fyrst og fremst gleði og sköpun, er Ikue nú loks að verða tilbúinn.
Til að allt sé sem best og sem flestir ánægðir óskum við því eftir fólki sem hefur áhuga á að prófa fyrir okkur leikinn næstu vikurnar.

Eina sem þú þarft er aðgangur að iPad-spjaldtölvu en áhugi á þrautaleikjum og heilabrotum er ágætis viðbót.

Til að gerast prófari þarf að opna eftirfarandi tengil á iPadinum og skrá sig í prófunarkerfið.
https://www.testflightapp.com/join/6b3138baa9ff6dcadd3a42207d4bc53c-MjI4OTg2/

Ef þið fylgið leiðinni sem þar kemur munuð þið byrja á að setja upp forrit sem er tengiliður á milli Apple og iPadsins. Þetta forrit gefur iPadinum ykkar leyfi til að keyra Ikue þó að hann sé ekki enn kominn í App-búðirnar, en eins og flestir vita er almennt ekki hægt að setja upp forrit á iPad sem ekki hafa verið gefin út í búðinni.

Þegar við sjáum að þið eruð búin að skrá iPadinn í kerfið samþykjum við ykkur sem prófara og þið munuð geta sótt leikinn ykkur að kostnaðarlausu.

Vonandi skemmtið þið ykkur vel og vinsamlegast látið okkur vita ef þið rekist á villur eða ef það er eitthvað sem vefst fyrir ykkur eða ykkur finnst að mætti betur fara.

Ekki hika að hafa samband t.d. á netfangið gebokano@gebokano.com ef þið eruð í vandræðum með að sækja leikinn.