Category One – Gebo Kano https://www.gebokano.com Wed, 04 Jan 2017 01:08:01 +0000 en-US hourly 1 https://wordpress.org/?v=6.9.4 Gebo Kano is one of the finest games publishers of March 2014 https://www.gebokano.com/gebo-kano-is-one-of-the-finest-games-publishers-of-march-2014/ Wed, 02 Apr 2014 09:55:07 +0000 http://gebokano.com/?p=4062 19604-1-t

Great news!
Gebo Kano is on in 15th place on the Qualityindex for the finest Game Publishers in March 2014.

 

]]>
Ikue – Released https://www.gebokano.com/ikue-released/ Thu, 13 Mar 2014 09:34:33 +0000 http://gebokano.com/?p=4028 Icon-76@2x

 

 

 

 

IKUE – Master your mind is now available in the App-Store.

Download_on_the_App_Store_Badge_US-UK_135x40_0801

 

 

More info about IKUE here.

[/vc_column_text][/vc_column][/vc_row][vc_row][vc_column width=”1/1″][postgallery_grid id=”grid_” data_source=”data-4″ orderby=”ASC” flickr_set=”No username entered” slidesetid=”IKUE3″ content_type=”image” imageeffect=”reflection” imgheight=”500″ lightbox=”yes”][/vc_column][/vc_row]

]]>
Jólasveinarnir eru komnir í iPad https://www.gebokano.com/jolasveinarnir-eru-komnir-i-ipad/ Tue, 26 Nov 2013 08:57:29 +0000 http://gebokano.com/?p=3933 icon_512

Nú þurfa iPad notendur ekki lengur að hafa áhyggjur af því að vita ekki hvaða jólasveinn kemur næst til byggða, því í dag kom Jólasveinadagatalið í App búðirnar um allan heim.

Um er að ræða app/smáforrit sem keyrir á iPad spjaldtölvum.  Í jólasveinadagatalinu er hægt að fá áminningu um hvaða jólasveinn kemur næstu nótt og senda hana á Facebook þannig að jólastressaðir vinir þar séu líka með á nótunum. Í dagatalinu er einnig hægt að nálgast helstu upplýsingar um þá bræður, foreldra þeirra og jólaköttinn, ásamt því að spila lítinn jólaleik til að stytta biðina fram að jólum. Von er á enskri útgáfu af Jólasveinadagatalinu innan örfárra daga.

Jólasveinadagatalið er frítt og er hægt að sækja það hér: https://itunes.apple.com/app/jolasveinadagatali/id755388950?ls=1&mt=8

 

 

[postgallery_grid id=”grid_” data_source=”data-4″ orderby=”ASC” flickr_set=”No username entered” slidesetid=”Jóla2,Jóla_skjáskot,Jólasveinar” content_type=”textimage” lightbox=”yes” imageeffect=”frame” imgwidth=”300″][/vc_column][/vc_row][vc_row][vc_column width=”1/1″][/vc_column][/vc_row]

]]>
Auglýsum eftir prófurum í beta-prófun https://www.gebokano.com/auglysum-eftir-profurum-i-beta-profun/ Mon, 09 Sep 2013 12:38:26 +0000 http://gebokano.com/?p=3892 m1Eftir margra mánaða svita og strit, en fyrst og fremst gleði og sköpun, er Ikue nú loks að verða tilbúinn.
Til að allt sé sem best og sem flestir ánægðir óskum við því eftir fólki sem hefur áhuga á að prófa fyrir okkur leikinn næstu vikurnar.

Eina sem þú þarft er aðgangur að iPad-spjaldtölvu en áhugi á þrautaleikjum og heilabrotum er ágætis viðbót.

Til að gerast prófari þarf að opna eftirfarandi tengil á iPadinum og skrá sig í prófunarkerfið.
https://www.testflightapp.com/join/6b3138baa9ff6dcadd3a42207d4bc53c-MjI4OTg2/

Ef þið fylgið leiðinni sem þar kemur munuð þið byrja á að setja upp forrit sem er tengiliður á milli Apple og iPadsins. Þetta forrit gefur iPadinum ykkar leyfi til að keyra Ikue þó að hann sé ekki enn kominn í App-búðirnar, en eins og flestir vita er almennt ekki hægt að setja upp forrit á iPad sem ekki hafa verið gefin út í búðinni.

Þegar við sjáum að þið eruð búin að skrá iPadinn í kerfið samþykjum við ykkur sem prófara og þið munuð geta sótt leikinn ykkur að kostnaðarlausu.

Vonandi skemmtið þið ykkur vel og vinsamlegast látið okkur vita ef þið rekist á villur eða ef það er eitthvað sem vefst fyrir ykkur eða ykkur finnst að mætti betur fara.

Ekki hika að hafa samband t.d. á netfangið gebokano@gebokano.com ef þið eruð í vandræðum með að sækja leikinn.

 

 

]]>
Ís-leikir heita nú Gebo Kano https://www.gebokano.com/is-leikir-heita-nu-gebo-kano/ https://www.gebokano.com/is-leikir-heita-nu-gebo-kano/#respond Wed, 28 Aug 2013 18:27:41 +0000 http://gebokano.com/?p=3682 favicon

Eftir áralangar vangaveltur létum við loks verða að því að breyta um nafn. Ástæðurnar fyrir því eru nokkrar. Stærsti hluti markaðsins okkar er erlendis frá og því ekki gott að vera með séríslenskt nafn sem auk þess er með séríslenskum staf í. Reynslan hefur líka sýnt okkur að bandstrikið í nafninu hefur ekki gert neitt annað en rugla fólk í ríminu. Að lokum höfum við færst það mikið yfir í námsefnisgerð og gerð annarra forrita en leikja að okkur fannst pínu skrítið að vera svona tengd leikjum með nafninu.

Það var sannarlega ekki auðvelt að finna nýtt nafn, manni þarf að líka við það, það þarf að passa við það sem við gerum og það má ekki vera til fyrir. Við veltum fyrir okkur mörgum möguleikum og skoðuðum í mörg horn allt frá norrænni goðafræði yfir í húmorískar myndlíkingar. Gebo Kano eru hinsvegar nöfn á tveimur af Fuþark rúnunum og er það kannski vel við hæfi þar sem einn af fyrstu leikjunum sem við gerðum heitir einmitt Fuþark og fjallar um þessar máttugu rúnir.

gebo  Gebo er hljóðið G. Gebo táknar gjöf og gjafmildi.

kano    Kano er hljóðið K. Kano táknar eld lífsins, visku, sköpunargáfur og uppgvötanir.
Saman merkja þessar rúnir því gjöf visku, sem er einmitt það sem okkur langar að gera með forritunum okkar.

 

]]>
https://www.gebokano.com/is-leikir-heita-nu-gebo-kano/feed/ 0
Styrkur frá atvinnumálum kvenna https://www.gebokano.com/styrkur-fra-atvinnumalum-kvenna/ Wed, 03 Apr 2013 09:44:07 +0000 http://gebokano.com/?p=3801 [vc_row][vc_column width=”1/1″][vc_column_text]

Ís-leikir fengu í dag afhentan styrk frá atvinnumálum kvenna. Styrkurinn er til vöruþróunar á alþjóðlegri útgáfu á Segulljóðum fyrir börn og fullorðna.
Nánari upplýsingar hér: http://www.atvinnumalkvenna.is/frettir/nr/1806/styrkjum-til-atvinnumala-kvenna-uthlutad/

[/vc_column_text][imageeffect image=”3802″ type=”shadowreflection” css_animation=”bottom-to-top” target=”_self”][/vc_column][/vc_row]

]]>
Vinnustofa á Skólaþingi https://www.gebokano.com/vinnustofa-a-skolathingi/ Tue, 19 Feb 2013 09:00:40 +0000 http://gebokano.com/?p=3784 Verðum með vinnustofu á Skólaþingi í Norðlingaskóla á morgun.

Norðlingaskóli 20. febrúar – Kl. 13:30

Vertu velkomin á skólaþing epli.is sem að þessu sinni verður haldið í Norðlingaskóla í Reykjavík. Mikið hefur verið lagt í veglega dagskrá þar sem lykilfyrirlesari verður Abdul Chohan frá ESSA Academy. Vinnustofur þar sem kennarar sýna hvernig er hægt að nýta iPad í kennslu og svo verða hönnuðir að kennsluforritum á svæðinu að kynna forritin sín.

Nánari upplýsingar hér: http://olafu1.wix.com/skolathing

]]>
Segulljóð komust í úrslit sem besta íslenska appið á Appmessu Microsoft https://www.gebokano.com/segulljod-komust-i-urslit-sem-besta-islenska-appid-a-appmessu-microsoft/ Thu, 07 Feb 2013 16:00:19 +0000 http://gebokano.com/?p=3798 Segulljóð komust í úrslit sem besta íslenska appið á Appmessu Microsoft.
Úrslitin verða tilkynnt í Rímu (salur í Hörpu) á laugardaginn
Þessi 5 Öpp eru komin í úrslit á APPmessu Microsoft
– 112 Iceland
– Stræto bs.
– Be Iceland
– AirServer
– Segulljóð
]]>
Segulljóðakeppni https://www.gebokano.com/segulljodakeppni/ https://www.gebokano.com/segulljodakeppni/#respond Fri, 01 Feb 2013 13:20:11 +0000 http://www.segulljod.is/?p=1171  

Í tilefni af UT-messunni í Hörpu 8.-9. febrúar 2013, efna Ís-leikir ehf. í samvinnu við Hotel RangáVeitingahús Við Tjörnina og Forlagið Útgáfa, til segulljóðaleiks þar sem keppt verður um bestu segulljóðin.

Til að taka þátt í keppninni þarftu að semja segulljóð með smáforritinu Segulljóð sem keyrir á iPad og iPhone og senda myndina af ljóðinu á netfangið: icegamer@icegamer.net.

Hægt er að senda ljóð í tölvupósti beint í gegnum forritið.
Í póstinum þarf að koma fram fullt nafn höfundar, netfang og símanúmer.
Þátttakendur geta sent segulljóðin inn í gegnum eigin tæki eða kíkt í básinn okkar á UT-messunni og samið ljóðið þar.

Smáforritið Segulljóð verður á sértilboði í AppStore meðan á leiknum stendur.

 

1. VERÐLAUN

Gistingu fyrir 2 í deluxe herbergi á Hótel Rangá ásamt morgunverðarhlaðborði.

2.-4. SÆTI

Bókin Sjóræninginn eftir Jón Gnarr í boði Forlagsins

Vinsælasta ljóðið á Facebook

Gjafabréf fyrir tvo á 4 rétta óvissumatseðil á Veitingahúsinu við Tjörnina ásamt kir Royal í fordrykk.

Hægt er að senda inn ljóð frá 1. febrúar til miðnættis laugardaginn 9. febrúar.

Reglulega verða innsend ljóð birt á Facebook síðu Segulljóða (án nafns höfundar), þar sem hægt verður að kjósa um vinsælasta ljóðið. Staða á vinsælasta ljóðinu verður athuguð á miðnætti sunnudaginn 10. febrúar og úrslit verða kynnt
mánudaginn 11. febrúar.

Munið að með Segulljóðum geta allir verið skáld

 

Ljóðasamkeppni

]]>
https://www.gebokano.com/segulljodakeppni/feed/ 0